Lífsverk lífeyrissjóður

Valmynd


23.4.2013

Afkoma sjóðsins árið 2012

Ávöxtun Lífsverks var góð á árinu 2012 þegar tekið er mið af eignasamsetningu og áhættustigi deildanna auk þess fjárfestingarumhverfis sem búið er við í dag.  Allar fjárfestingarleiðir skiluðu jákvæðri nafn- og raunávöxtun á árinu. 

 

Ávöxtun Lífsverks var góð á árinu 2012 þegar tekið er mið af eignasamsetningu og áhættustigi deildanna auk þess fjárfestingarumhverfis sem búið er við í dag.  Allar fjárfestingarleiðir skiluðu jákvæðri nafn- og raunávöxtun á árinu. 

Sjóðurinn er blandaður sjóður sem rekur eina samtryggingardeild og þrjár leiðir í séreignardeild.  Af 12% iðgjaldi fer 10% til samtryggingardeildar en 2% sem bundin séreign til séreignardeildar.  Sjóðurinn stækkaði  um 16,5% á árinu og námu heildareignir allra deilda í árslok 45 milljörðum króna.  Nýliðun í sjóðinn var góð.  Aukning varð í greiddum iðgjöldum í báðum deildum og nam hækkunin 9,5% í samtryggingardeild.

tafla-(2)

Nafnávöxtun samtryggingardeildar var 10,5% og raunávöxtun 5,8% samanborið við 6,4% nafnávöxtun og  1,1% raunávöxtun árið 2011.  Innlend og erlend hlutabréf gáfu bestu ávöxtun eignaflokka í samtryggingardeild.  Félag tryggingastærðfræðinga birti nýjar tölur um meiri lífslíkur kvenna og karla undir lok árs 2012 sem juku skuldbindingar sjóðsins um 1,2%.  Samkvæmt tryggingafræðilegri athugun voru heildarskuldbindingar 4,2% umfram heildareignir í árslok.  Vísitala neysluverðs hækkaði um 4,5% á árinu og gengi krónunnar veiktist um rúm 6%.

Nafnávöxtun séreignarleiðar 1 var 6,6% og raunávöxtun var 2%.  Hrein eign í árslok var 5.255m.kr. og jókst um 17,5% á milli ára.  Nafnávöxtun séreignarleiðar 2 var 9,6% og raunávöxtun 4,9%.  Hrein eign í árslok nam 565m.kr. og hækkaði um 24% á milli ára.  Nafnávöxtun séreignarleiðar 3 var 5,1% og raunávöxtun 0,6%.  Hrein eign í árslok var 55m.kr. og hækkaði um 28%.

Aðalfundur sjóðsins verður haldinn miðvikudaginn 22.5  kl. 17.  Fundarboð verður sent út þegar nær dregur fundi.


Forsíða

  • Skyldusparnaður
    • Samtryggingardeild
    • Eignasamsetning og ávöxtun
    • Fjárfestingarstefna
    • Áhættustefna
    • Útgreiðsla lífeyris og réttindi
    • Reiknivél
    • Spurt og svarað
  • Viðbótarsparnaður
    • Almennt um viðbótarlífeyrissparnað
    • Ávöxtunarleiðir
    • Lykilupplýsingaskjöl
    • Útgreiðsla
    • Reiknivél
    • Spurt og svarað
  • Sjóðfélagalán
    • Lán hjá Lífsverki
    • Umsóknarferli lána
    • Vextir og gjaldskrá
    • Greiðslujöfnunarsjóður
    • Reiknivél
    • Lánsumsókn
    • Lánareglur
    • Spurt og svarað
  • Ábyrgar fjárfestingar
    • Stefna
      • Skýrsla 2021
    • Kostgæfnisathugun
    • Meðferð atkvæðisréttar
  • Launagreiðendur
    • Skilagreinar
    • Greiðsluupplýsingar
  • Um sjóðinn
    • Stjórn
    • Starfsfólk
    • Ársskýrslur
    • Samþykktir
    • Reglur og stefnuskjöl
    • Ábyrgar fjárfestingar
    • Fréttasafn
    • Skráning í Lífsverk
    • Umsóknir
    • Persónuverndarstefna
    • Spurt og svarað

Um sjóðinn

  • Stjórn
  • Starfsfólk
  • Ársskýrslur
  • Samþykktir
  • Reglur og stefnuskjöl
  • Ábyrgar fjárfestingar
  • Fréttasafn
  • Skráning í Lífsverk
  • Umsóknir
  • Persónuverndarstefna
  • Spurt og svarað

Innskráning

  • Sjóðfélagar
  • Launagreiðendur
  • Umsóknir

  • Um sjóðinn
  • Spurt og svarað
  • Fréttir
  • Umsóknir
  • Launagreiðendur
  • English

Leita á vefnum


Skráning í Lífsverk
  • 575 1000
  • lifsverk@lifsverk.is
  • 9:00-16:00 mán.-fim. / 9:00-15:00 föstudaga
Lífsverk lífeyrissjóður – lógó Kennitala: 430269-4299
  • Engjateigi 9
    105 Reykjavík
  • Opið
    9:00 - 16:00   mán. - fim.
    9:00 - 15:00   föstudaga
  • 575 1000
  • lifsverk@lifsverk.is
  • Facebook

  • Skráning í Lífsverk
  • Umsóknir
  • Hafa samband
  • Persónuvernd
Stoltur aðili Festu
Þetta vefsvæði byggir á Eplica