Lífsverk lífeyrissjóður

Valmynd


9.4.2015

Afkoma sjóðsins á árinu 2014

Samkvæmt tryggingafræðilegri athugun voru heildareignir samtryggingardeildar 0,2% umfram heildarskuldbindingar í árslok og var staða sjóðsins því jákvæð annað árið í röð. 

Ávöxtun Lífsverks var góð á árinu 2014 þegar tekið er mið af áhættustigi fjárfestingarleiða sjóðsins og fjárfestingarmöguleikum.  Allar leiðirnar skiluðu jákvæðri nafn- og raunávöxtun á árinu.

Nafnávöxtun samtryggingardeildar var 7,4% á árinu 2014 og nafnávöxtun fjárfestingarleiða séreignardeildar var á bilinu 2,8-4,6%  .

Sjóðurinn stækkaði um 12,2% á árinu og námu heildareignir beggja deilda, samtryggingar og séreignar, um 57,7 milljörðum króna.  Lífsverk er á meðal þeirra lífeyrissjóða sem hraðast hafa vaxið undanfarin ár sem skýrist m.a. af því að hlutfall lífeyris af iðgjöldum er lágt þegar horft er til annarra lífeyrissjóða. Hrein eign í árslok 2014 til greiðslu lífeyris í samtryggingardeild var 49.880 m.kr. og í séreignardeild 7.777 m.kr.

Aukning varð í fjölda virkra sjóðfélaga í samtryggingardeild í fyrsta sinn um nokkurt skeið og töluverð fjölgun varð meðal rétthafa í séreignardeild með gerð nýrra samninga um viðbótarsparnað.

Samkvæmt tryggingafræðilegri athugun voru heildareignir samtryggingardeildar 0,2% umfram heildarskuldbindingar í árslok og var staða sjóðsins því jákvæð annað árið í röð.  Góð raunávöxtun bætti áfallna stöðu sjóðsins verulega. Nýjar réttindatöflur tóku gildi 1.1.2015 í samræmi við grein 6.2 í samþykktum sjóðsins.  Réttindaávinningur fyrir greitt iðgjald í framtíðinni hækkaði við breytingarnar og hafði áhrif til lækkunar á tryggingafræðilegri stöðu.  Ástæða er til að benda á að gott jafnvægi hefur náðst á milli áunninnar stöðu og framtíðarstöðu sjóðsins.

Lífsverk er sjóður háskólamenntaðra sérfræðinga. Hann er blandaður lífeyrissjóður sem starfrækir samtryggingardeild og þrjár leiðir í séreignardeild. Af 12% skylduframlagi í lífeyrissjóðinn fer 10% til samtryggingardeildar og 2% til séreignardeildar nema sérstaklega sé óskað eftir að allt skylduframlagið skuli fara í samtryggingardeildina.

Nafnávöxtun samtryggingardeildar var 7,4% og raunávöxtun 6,3% samanborið við 8,7% nafnávöxtun og 4,8% raunávöxtun árið 2013.  Hrein raunávöxtun s.l. þrjú ár var að meðaltali 5,4% sem er töluvert yfir 3,5% ávöxtunarviðmiði lífeyrissjóða sem notað er við útreikninga á tryggingafræðilegri stöðu.  Smellið á töfluna hér til hliðar þar má sjá nánari upplýsingar um afkomu samtryggingardeildar.

Nafnávöxtun Lífsverks 1 var 4,5% og raunávöxtun var 3,4%.  Hrein eign í árslok var 862 m.kr. og jókst um 17% á milli ára.  Nafnávöxtun Lífsverks 2 var 2,8% og raunávöxtun 1,7%.  Hrein eign í árslok nam 6.800 m.kr. og hækkaði um 12,5% á milli ára.  Nafnávöxtun Lífsverks 3 var 4,6% og raunávöxtun 3,5%.  Hrein eign í árslok var 114m.kr. og hækkaði um 65%.

Nánari upplýsingar verða veittar á aðalfundi sjóðsins sem fram fer kl. 17 þann 15. apríl n.k. að Engjateigi 9.


Forsíða

  • Skyldusparnaður
    • Samtryggingardeild
    • Eignasamsetning og ávöxtun
    • Fjárfestingarstefna
    • Áhættustefna
    • Útgreiðsla lífeyris og réttindi
    • Reiknivél
    • Spurt og svarað
  • Viðbótarsparnaður
    • Almennt um viðbótarlífeyrissparnað
    • Ávöxtunarleiðir
    • Lykilupplýsingaskjöl
    • Útgreiðsla
    • Reiknivél
    • Spurt og svarað
  • Sjóðfélagalán
    • Lán hjá Lífsverki
    • Umsóknarferli lána
    • Vextir og gjaldskrá
    • Greiðslujöfnunarsjóður
    • Reiknivél
    • Lánsumsókn
    • Lánareglur
    • Spurt og svarað
  • Ábyrgar fjárfestingar
    • Stefna
      • Skýrsla 2021
    • Kostgæfnisathugun
    • Meðferð atkvæðisréttar
  • Launagreiðendur
    • Skilagreinar
    • Greiðsluupplýsingar
  • Um sjóðinn
    • Stjórn
    • Starfsfólk
    • Ársskýrslur
    • Samþykktir
    • Reglur og stefnuskjöl
    • Ábyrgar fjárfestingar
    • Fréttasafn
    • Skráning í Lífsverk
    • Umsóknir
    • Persónuverndarstefna
    • Spurt og svarað

Um sjóðinn

  • Stjórn
  • Starfsfólk
  • Ársskýrslur
  • Samþykktir
  • Reglur og stefnuskjöl
  • Ábyrgar fjárfestingar
  • Fréttasafn
  • Skráning í Lífsverk
  • Umsóknir
  • Persónuverndarstefna
  • Spurt og svarað

Innskráning

  • Sjóðfélagar
  • Launagreiðendur
  • Umsóknir

  • Um sjóðinn
  • Spurt og svarað
  • Fréttir
  • Umsóknir
  • Launagreiðendur
  • English

Leita á vefnum


Skráning í Lífsverk
  • 575 1000
  • lifsverk@lifsverk.is
  • 9:00-16:00 mán.-fim. / 9:00-15:00 föstudaga
Lífsverk lífeyrissjóður – lógó Kennitala: 430269-4299
  • Engjateigi 9
    105 Reykjavík
  • Opið
    9:00 - 16:00   mán. - fim.
    9:00 - 15:00   föstudaga
  • 575 1000
  • lifsverk@lifsverk.is
  • Facebook

  • Skráning í Lífsverk
  • Umsóknir
  • Hafa samband
  • Persónuvernd
Stoltur aðili Festu
Þetta vefsvæði byggir á Eplica