Lífsverk lífeyrissjóður

Valmynd


17.12.2018

Ávöxtun í fortíð og framtíð

Í Silfrinu á Rúv sunnudaginn 16. desember var viðtal við Hallgrím Óskarsson, verkfræðing, sem tók saman skýrslu um lífeyriskerfið sem út kom í maí sl. Í þættinum var ávöxtun lífeyrissjóðanna árin 2000 – 2017 borin saman. Lífsverk kom ekki vel út í þeim samanburði en rétt er að koma á framfæri nokkrum athugasemdum:

Í Silfrinu á Rúv sunnudaginn 16. desember var viðtal við Hallgrím Óskarsson, verkfræðing, sem tók saman skýrslu um lífeyriskerfið sem út kom í maí sl. Í þættinum var ávöxtun lífeyrissjóðanna árin 2000 – 2017 borin saman. Lífsverk kom ekki vel út í þeim samanburði en rétt er að koma á framfæri nokkrum athugasemdum:

  • Lífeyrissjóður starfsmanna Búnaðarbanka Íslands kom best út í samanburði Hallgríms. Það er lokaður sjóður sem tekur við iðgjöldum frá færri en 30 sjóðfélögum og er því vart samanburðarhæfur.
  • Árin sem notuð eru til samanburðar koma einstaklega illa út fyrir Lífsverk. Hrein raunávöxtun var mjög góð hjá sjóðnum í aðdraganda ársins 2000, sem er fyrsta samanburðarárið, eða 9,2% 1996, 6,69% 1997, 10,98% 1998 og 21,57% 1999. Árið 2000 var hins vegar neikvæð raunávöxtun hjá sjóðnum um 7,89%.
  • Á það skal bent að á árunum fyrir efnahagshrunið 2008 var engin eiginleg eignastýring hjá sjóðnum, heldur var eignastýringu sinnt í hjáverkum af sérstöku fjárfestingarráði. Á þessu hefur orðið gjörbreyting. Nú eru tveir starfsmenn hjá sjóðnum sem eingöngu sinna eignastýringu auk þess sem regluverk um áhættustýringu hjá lífeyrissjóðum er orðið mun vandaðra en áður.
  • Síðastliðin 5 ár var meðaltal hreinnar raunávöxtunar Lífsverks 5% (miðað við 31.12.2017). Á árinu 2016 náði Lífsverk hæstu raunávöxtun allra lífeyrissjóða á Íslandi.
  • Þrátt fyrir þetta skal bent á að uppgjörsaðferðir lífeyrissjóðanna eru mismunandi og því gefur beinn samanburður milli sjóða ekki endilega rétta mynd af árangri sjóðanna í eignastýringu.
  • Aðrir þættir en ávöxtun í fortíð skipta meira máli við val á lífeyrissjóði. Þar vegur þungt réttindaávinnsla hvers árs, hvort möguleiki sé að setja hluta iðgjalda í séreign og hvernig rekstri og stjórn sjóðsins er háttað.
  • Lífsverk birtir ársskýrslur á heimasíðu sinni og þar má sjá ítarlegar upplýsingar um starfsemi sjóðsins og kennitölur, eins og sundurliðun á nafn- og raunávöxtun hvers ár fyrir hverja ávöxtunarleið, auk 5 ára og 10 ára meðaltals. Sjóðfélagar geta hvenær sem er nálgast yfirlit um réttindastöðu sína og hreyfingar iðgjalda á sjóðfélagavefnum sem er aðgengilegur frá heimasíðunni.
  • Markmið Lífsverks er að stuðla að bættum stjórnarháttum og auka enn gagnsæi í upplýsingagjöf. Lífsverk vinnur eftir stefnu sjóðsins um samfélagslega ábyrgð og leitast við að taka í auknum mæli þátt í fjárfestingum í takt við hana og finna leiðir til að bæta stöðu sjóðfélaga til framtíðar. Sem dæmi um þetta má nefna að Lífsverk er eini lífeyrissjóðurinn sem býður 85% fjármögnun vegna fyrstu íbúðakaupa og nýverið gekk sjóðurinn frá samningi um forgang sjóðfélaga að íbúðum eldri borgara í Mörk.

Forsíða

  • Skyldusparnaður
    • Samtryggingardeild
    • Eignasamsetning og ávöxtun
    • Fjárfestingarstefna
    • Áhættustefna
    • Útgreiðsla lífeyris og réttindi
    • Reiknivél
    • Spurt og svarað
  • Viðbótarsparnaður
    • Almennt um viðbótarlífeyrissparnað
    • Ávöxtunarleiðir
    • Lykilupplýsingaskjöl
    • Útgreiðsla
    • Reiknivél
    • Spurt og svarað
  • Sjóðfélagalán
    • Lán hjá Lífsverki
    • Umsóknarferli lána
    • Vextir og gjaldskrá
    • Greiðslujöfnunarsjóður
    • Reiknivél
    • Lánsumsókn
    • Lánareglur
    • Spurt og svarað
  • Ábyrgar fjárfestingar
    • Stefna
      • Skýrsla 2021
    • Kostgæfnisathugun
    • Meðferð atkvæðisréttar
  • Launagreiðendur
    • Skilagreinar
    • Greiðsluupplýsingar
  • Um sjóðinn
    • Stjórn
    • Starfsfólk
    • Ársskýrslur
    • Samþykktir
    • Reglur og stefnuskjöl
    • Ábyrgar fjárfestingar
    • Fréttasafn
    • Skráning í Lífsverk
    • Umsóknir
    • Persónuverndarstefna
    • Spurt og svarað

Um sjóðinn

  • Stjórn
  • Starfsfólk
  • Ársskýrslur
  • Samþykktir
  • Reglur og stefnuskjöl
  • Ábyrgar fjárfestingar
  • Fréttasafn
  • Skráning í Lífsverk
  • Umsóknir
  • Persónuverndarstefna
  • Spurt og svarað

Innskráning

  • Sjóðfélagar
  • Launagreiðendur
  • Umsóknir

  • Um sjóðinn
  • Spurt og svarað
  • Fréttir
  • Umsóknir
  • Launagreiðendur
  • English

Leita á vefnum


Skráning í Lífsverk
  • 575 1000
  • lifsverk@lifsverk.is
  • 9:00-16:00 mán.-fim. / 9:00-15:00 föstudaga
Lífsverk lífeyrissjóður – lógó Kennitala: 430269-4299
  • Engjateigi 9
    105 Reykjavík
  • Opið
    9:00 - 16:00   mán. - fim.
    9:00 - 15:00   föstudaga
  • 575 1000
  • lifsverk@lifsverk.is
  • Facebook

  • Skráning í Lífsverk
  • Umsóknir
  • Hafa samband
  • Persónuvernd
Stoltur aðili Festu
Þetta vefsvæði byggir á Eplica